Á Hótel Frosti & Funa sameinast falleg hönnun og þægindi og setja tóninn fyrir notalega dvöl í rólegu umhverfi. Hótelið stendur við bakka Varmár þar sem heitir hverir eru allt í kring og útsýnið einstakt. Úr herbergjum geta gestir gengið beint út og notið laugarinnar og heitu pottanna á opnunartíma.
Hótel Frost & Funi er staðsett rétt fyrir ofan Hveragerði, við bakka hinnar lygnu Varmár. Hótelið er umlukið hverum og einstakri náttúrufegurð hvert sem litið er. Þar er tilvalið að slaka á með ástvinum og fjölskyldu, þétta vinahópinn eða efla liðsandann meðal vinnufélaga, enda er hótelið vel staðsett fyrir hverskyns fundi, brúðkaup eða veislur.